Eftirfarandi er tölvupóstur frá mér til Ögmundar Jónassonar og svar hans við honum sem svo skemmtilega vill til að hann svaraði loksins og er komin til mín 43 mínútum eftir að ég bloggaði hérna á blog.is í gær... Sem var klukkan 15.00... Það er þá ágætt að vita til þess að hann eða einhver á hans vegum sé að fylgjast með því hvað ég er að blogga... En engu að síður... Mér er gert ómögulegt af íslenskum stjórnvöldum að búa hérna á Íslandi með þessari hegðun þeirra og lögbrotum gagnvart mér... Því segi ég enn og aftur...
Ég er hættur, farinn... Tek ekki þátt í svona bulli meir...!
Svo skuldar íslenska ríkið mér pening... Eða nákvæmlega fjórtán milljónir og sjö hundruð þúsund evrur, samkvæmt útgefnum reikningi og gengi dags 25.05.2010... Og ég mun rukka...!
Kv. Sævar Óli...
On Sat, May 12, 2012 15:43 BST ogmundur.jonasson@irr.is wrote:
Komdu sæll,
Hef verið í sambandi við Brynjar Níelsson, lögmann þinn. Hafði heyrt um að
eigur þínar eru fundnar. Rangt er hjá þér að fundur okkar hafi verið undir
fölsku yfirskini, eins og þú nefnir. Mikilvægt er að þú fáir öruggt
húsnæði og hef ég verið að reyna að leggja mitt af mörkum þér til
aðstoðar.
Kveðja,
Ögmundur
From:
Sævar Óli Helgason kvarkurkvarkz@yahoo.com>
To:
"ogmundur.jonasson@irr.is" ogmundur.jonasson@irr.is>
Date:
25.04.2012 12:49
Subject:
Ætlað "sáttarferli" á milli okkar...?!?
Sævar Óli Helgason
190271-3159
Tjarnargötu 32.
101 Reykjavík
Gsm: 8487019
Innanríkisráðherra.
Ögmundur Jónasson
Sölvhólsgötu 7.
150 Reykjavík
Reykjavík 24.04.2012.
Hr. Ráðherra.
Eftir að hafa beðið með frekari rukkunaraðgerðir gagnvart íslenska ríkinu
vegna ætlaðs sáttaferlis sem við funduðum útaf fyrir um fjórum mánuðum
síðan og sannmæltumst svo um að við myndum reyna að kanna á milli okkar...
Verð ég að lýsa vonbrigðum með útkomuna á því ferli... Því það ferli er
nánast ekkert af hálfu ríkisins...!
Ég er enn heimilislaus og sé ekki hvort eða hvernig það mál leysist...
Minni ég á að opinn leigumarkaður hefur verið eyðilagður fyrir mér hingað
til vegna ólöglegra aðgerða einstaklinga innan lögreglunnar gegn mér... Ég
hef verið í litlu herbergi á Herkastalanum hjá Hjálpræðishernum en verð að
koma mér þaðan út í byrjun næsta mánaðar... Ég hef ekki getað notað mér
velferðarsvið Reykjavíkurborgar vegna krafna þeirra um að ég skrifi uppá
það að rukkunaraðgerðir mínar gagnvart ríkinu hafi verið plat og ekki
marktækar, sem ég tel tilkomna vegna pólitískrar hjarðhegðunar fólks úr
Samfylkingunni innan borgarkerfisins sem beinist gegn minni
réttindabaráttu, og eru mér þessvegna þær leiðir til aðstoðar lokaðar...
Þrátt fyrir að skriflegar viðurkenningar starfsfólks velferðarsviðs
Reykjavíkurborgar að á mér hafi verið brotið... N.b...!
Hef ég ekki heldur fengið neina staðfestingu á að stjórnvöld hafi nokkurn
raunverulegan vilja til sátta við mig með því t.d að láta þau mál niður
falla sem skapast hafa í minni réttindabaráttu, okkar á milli, eða að sjá
til þess að þeir einstaklingar er bera ábyrgð gagnvart margumræddum árásum
á heimili mitt verði látnir sæta ábyrgð gjörða sinna...
Eftir ötult starf lögfræðings míns Brynjars Níelssonar hefur hann loksins
grafið upp hvar eigur mínar eru, þær er hurfu við árás á heimili mitt að
Njálsgötu 8c... Kom hefur það í ljós að dæmdur þjófur, hálfbróðir minn, og
fóstri, sem áður hafði einnig ráðist á heimili mitt með ólöglegri aðstoð
lögregluþjóna sem svo "týndust" og ekki vitað hverjir voru í skýrslum hjá Lögreglu Höfuðborgarsvæðisins, hafa "geymt" eigur mínar í öll þessi ár án lagaheimilda eða
tilrauna til að koma þeim af sér í mínar hendur eftir ólöglegan útburð
þeirra á mér af heimili mínu... Sem mér skilst nú að þeir hafi staðið
fyrir með leyfi sýslumannsfíflsins á Selfossi og Steinunnar Fjólu, þ.v
sýslufulltrúa og n.v lögfræðings í umhverfisráðuneytinu...!
Get ég ekki skilið hvernig í andskotanum þessir einstaklingar hafa fengið
leyfi sýslumannsfíflsins á Selfossi til þess að skipta dánarbúi því er ég
bjó í nema um bein samantekin ráð, gegn mér og mínum rétti, hafi verið um
að ræða... Bendir líka sú staðreynd að "óeðlilegar og óútskýrðar tafir"
(samkvæmt dómsorði Hæstaréttar) sem var á rannsókn þjófnaðarmáls gegn
þessum hálfbróður mínum, hjá sýslumannsembættinu á Selfossi, einnig til
þess að um samantekin ráð og samsæri gegn mér sé þarna um að ræða...
Afþessu leiðir að ég, undirritaður, tel raunverulegan vilja stjórnvalda
til sátta við mig engan og fundur okkar á sínum tíma yfirskin og blekking
ein í illkvittnum tilgangi og af vafasömum ásettningi gagnvart mér og
mínum málum... Þú verður að skilja, en frá mínum sjónarhóli er voðalega
fátt sem bendir til annars...
Vil ég í framhaldinu af þessu samt sýna þér þann velvilja að tilkynna þér
hér með að ég, undirritaður, er ekki hættur neinum aðgerðum gangvart
íslenska ríkinu né öðrum opinberum aðilum... Mun ég í framhaldinu þ.e
strax í byrjun næsta mánaðar halda utan til að leita á náðir erlendra
ríkja, þar sem ég er hvort eð er heimilislaus, og ríkjasambanda sem ég
ætla svo að reyna að fá hjálp hjá gagnvart íslenska ríkinu og öðrum
opinberum aðilum hérna á Íslandi... Ég ætla s.s að höfða mál gegn íslenska
ríkinu og sveitarfélaginu Reykjavíkurborg fyrir alþjóðadómstól er fjallar
um svona mál og Ísland er aðili að...
Nema úr rætist strax...!
Virðingarfyllst.
Sævar Óli Helgason
Bloggar | 13.5.2012 | 14:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vandamál mitt er gamalt... Síðan vel fyrir hrun... En þrátt fyrir að ég hafi gert allt mitt til að fá leiðréttingu minna mála innan stjórnkerfisins og gefið íslenskaríkinu fullt af tækifærum til að draga mig fyrir dóm þegar ég hef verið í rukkunaraðgerðum gagnvart ríkinu, þá er mér ekki annsað ég ekki virtur viðlits né ekki einusinni ákærður eða dregin fyrir dómara svo deilumáli mínu gagnvart íslenska stjórnkerfinu myndi verða til lykta leitt á löglegan máta... Ég er s.s beittur hinni alkunnu "þöggunaraðferð" sem hið íslenska stjórnkerfi var sem harðast gagnrýnt fyrir í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis vegna efnahagshrunsins... Það hefur s.s ekkert breyst...!
Við líði er sama kerfið... Sömu embættismennirnir... Sami hugsunarhátturinn... Og sama klíkuveldið innan kerfisins þrátt fyrir að viðurkennt sé að á Íslandi hafi orðið kerfishrun sem olli því efnahagshruni sem almenningur í landinu þarf núna að borga fyrir... Og þrátt fyrir öll loforð um annað... (Betra og nýtt Ísland t.d.) Þá er allt hérna við það nákvæmlega sama...!
Hér keppist allt embættiskerfið í einum risastórum rottuhnút við að fría sjálfan sig og hinar rotturnar í þeirri sjálfsbjargarviðleitni sem rotturnar eru sem best þekktastar fyrir... Hugsunarhátturinn "Við og svo hinir..." og "Við gegn hinum..." eða réttara sagt "Við gegn almenningi...!" Gegnsýrir allt stjórnkerfi Íslands frá æðstu embættum Íslands niðurí ómerkilega löggubjána... Þannig að ríkisbanknið og sveitarfélögin eru í raun og veru að starfa gegn hagsmunum hins almennaborgara í viðbjóðslegum klíkuskap sem á sér enga aðra líkingu en spilltustu afkima stjórnsýslusögu Ítalíu... Og þeir, Ítalarnir, með alla sína Kolkrabba, Mafíur og Frímúrarareglur... Pælið í því...!
Hér á Íslandi höfum við mikið hættulegra fyrirbæri... Það fyrirbæri er í daglegutali nefnt "fjórflokkakerfið" og notar þetta "fjórflokkakerfi" Alþingi og stjórnsýsluna sér til verndar gegn einstaklingnum og gegn þjóðinni þannig að Ísland er orðið að lögregluríki án lagalegraheimilda og samþykkis lýðræðisins... Hér beitir stjórnsýslan hlerunum og njósnum á hópa og einstaklinga á ólöglegan máta og kemst upp með það...! Á kostnað mannréttinda borgaranna...
En það versta er að hinn almenniborgari trúir þessu ekki uppá stjórnvöld í landinu... Hann trúir því ekki að Ísland sé orðið núþegar að lögregluríki og frelsið sem honum er sagt að hann hafi sé í raun og veru blekking... Hinn almenniborgari trúir því nefnilega að hann gæti kosið vitleysuna í burt í lýðræðislegum kosningum einsog á að vera... En því miður gerir hinn almenniborgari sér ekki grein fyrir því að hin kerfislæga ólöglega spilling, sem "fjórflokkakerfið" kom á, er föst inní stjórnsýslunni og þaðan fer hún ekki með neinum kosningum... Því hún var skipuð til starfa af þeim sem stjórnuðu í undanfara efnahagshrunsins og samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis ullu því kerfishruni sem almenningur er nú látinn borga fyrir...
-
Því ætla ég nú að kveðja ykkur og koma mér í burt af landinu, ég vona að ég mæti skilnings útí hinum stóra heimi og á mig verði hlustað... Ég tala nú ekki um trúað... (Ég þó allavega hef eitt með mér í því fyrirliggjandi ferli erlendra ríkja við mat á umsókn minni um hæli og aðstoð sem pólitískurflóttamaður... Það er einmitt fyrrnefnd skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis og útlistun rannsóknarnefndarinnar á gölluðum starfsháttum stjórnsýslunnar... Sem n.b hefur ekkert breyst...) Og skil ég hér með eftir bæn mína um ykkar glæstu framtíð á þessari stórhættulegu eyju...
Ég legg svo á og mæli að það megi rigna yfir ykkur eldi og brennisteini vegna heimsku ykkar, syndar gegn lýðræðinu og sofandiháttar gagnvart þessum innlendum glæpasamtökum sem kalla sig stjórnmálasamtök... Mín elskulega þjóð... Því ég er hættur, farinn og Thanks for all the fish...!
-
P.s...
Og svo skuldið þið mér, íslenskaríkið, fjórtánmilljónir og sjöhundruðþúsund evrur samkvæmt útgefnum reikningi og gengi dags 25.05.2010... Og ég mun koma til með að rukka ykkur hvar og hvenær sem ég get...!
Bloggar | 12.5.2012 | 15:00 (breytt kl. 19:18) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þetta var frábær fyrsti þáttur, frábær myndataka og vel aðgengilegt fyrir plebbann mig... Ég vona að áframhaldið verði jafn gott...
Loka samantektin í síðustu settningu þáttarins var svo eitthvað sem mér fannst ótrúlega skondið... Miðað við það sem hefur gerst...
Enn og aftur... Takk...!
|
Samanburðarleysi háir Íslendingum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 29.4.2012 | 22:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er líklega það að reyna til þrautar að fá okkur þrjóskuhundana á Íslandi til að taka við þeirra útréttu hönd... Sem þeir rétta fram algjörlega á þeirra eigin forsendum... N.b...!
S.b.r... Að senda hingað kapítalista til fjárfestinga, rétt eftir eitt stk. (búsáhalda)byltingu, og móðgast svo yfir því að við afþökkuðum pennt... Ég hefði aldrei trúað því uppá Alþýðulýðveldið Kína að koma svoleiðis fram við vinaþjóð sína og nýorðna byltingarbræður... Þjóð sem á við sama yfirganginn að stríða og Kínverjar sjálfir áttu þ.e heimsvaldastefnu þeirra gömlu "ópíumdjöfla..."
Þeir ættu að sína okkur raunverulegan samhug í verki og koma okkur til raunverulegrar hjálpar... En ekki senda hingað til okkar úlfa í sauðagærum sem sína okkur takmarkaða virðingu á okkar eigin landi með því að fara framá að við leggjum niður lög í þeirra þágu...
Það er furðulegt að auðvaldstefna virðist ríkja í öllum þeirra samskiptum við erlend ríki... Og það hjá kínverska Alþýðulýveldinu...!!!
Talandi um að mæla á tungum tveim...!
P.s...
Og ef einhver er að pæla í hvort ég sé að fá borgað fyrir að skrifa hérna á blog.is... Þá skal það upplýsast hér með að ég fékk borgað fyrir að skrifa þessa bloggfærslu... Og það í fyrsta skipti...!
|
Jóhanna tók á móti Wen Jiabao |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 20.4.2012 | 13:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Samkvæmt mínum heimildum þá eru öll erlend skip í vetur búin að vera grunuð á einhverjum tímapunkti að stunda ólöglegar veiðar innan fiskveiðilögsögunnar...
Það er einungis vegna þess að skipstjórnendur þeirra vita að Landhelgisgæsla Íslands hefur ekki haft tæki og tól til að standa þau að ólöglegum veiðum...
Og miðað við gengi krónunnar og kröfu Karls Gauta útí Vestmannaeyjum, í máli Nojarans um daginn, þá margborgar sig að taka áhættuna...
Segja svo bara... "Sorrý...!?! Ég bara vissi ekki af þessu..."
|
Staðinn að ólöglegum veiðum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 19.4.2012 | 21:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
En að láta svona útúr sér þegar hann gegnir embættisstöðu dómara og setjast svo í dómarasæti yfir viðkomandi glæpamanni benndir einungis til þess að hann hafi með þessari hegðan sinni ætlað sér að eyðileggja dómþingið yfir Breivik...
-
Segjum sem svo t.d að Breivik hafi verið líkamlega veikur, hann hafi haft kannski heilaæxli sem hafi valdið þessari árásarhneigð, sem hafi valdið svo þessari geðveikislegu og órökréttu hegðun hjá honum... Var þá réttlætanlegt, í huga dómarans, af samfélaginu að aflífa Breivik fyrir það sem hann hefur gert...?
Hvað þá með vangefna eða annað fólk sem ræður ekki við sig t.d undir álagi vegna einhverra utanaðkomandi aðstæðna...? Er réttlætanlegt af einhverju dómsvaldi, eða samfélagi, að dæma sakborning til dauða þegar viðkomandi hefur gert eitthvað í óminni, óráði og sjúklegubræðiskasti sem einstaklingurinn ræður ekki við...?
Finnst ykkur það kristileg hegðum og hugsunarháttur svona yfirleitt...?
Og þá er ég alls ekki að mæla með dauðadómum yfir neinum í neinu samhengi... Ég er algjörlega á móti þeim...!
-
Það kæmi mér ekki á óvart að þessi vitleysingur verði fyrir þessa hegðun sína látinn fara sem dómari eftir þetta... Hann hefur sýnt af sér órökrétta öfgahegðun og skapaði með henni hættu á að dómþing yfir glæpamanni, morðingja, verði dæmt ómark...!
-
Þetta dómarapeð er örugglega á leið í pólitík fyrir eitthvert öfgaframboðið... Það er það eina sem mér dettur í hug að gæti réttlætt þessa hegðun hans... Hann er s.s lítið betri en Breivik sjálfur sem vantar og leitar eftir athygli á sinn sjúklegahátt... Hann er með þessu að vekja athygli á sjálfum sér og ekkert annað...!
-
P.s...
Þetta er akkúrat dæmi um að málfrelsi er EKKI, og mun aldrei verða, algjört í siðuðum lýðræðisþjóðfélögum... Og Snorri í Betel braut einmitt gegn þarna um daginn með fordæmingu sinni á samkynhneigðum... Sumir, starfa sinna vegna, meiga ekki tala og/eða lýsa skoðunum sínum...!
|
Stendur við ummælin |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 19.4.2012 | 19:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
-
Ég þekki mann sem heitir því skemmtilega nafni Björn Bjarnason...
Hann er ekki fyrrverandi ráðherra...
Þegar hann var yngri þá var hann það óheppinn að vera nauðalíkur einum "góðkunningja" lögreglunnar og fékk þessvegna heldur betur að finna fyrir því...
Einusinni, þegar hann var ungur maður, var hann á hjóli léttklæddur án veskis á góðviðrisdegi niðrí miðbæ Reykjavíkur... Stoppaði þá lögreglubíll við hliðina á honum og stukku lögregluþjónarnir á hann með offorsi, fóru með uppá stöð og stungu honum inní klefa... Þar fékk hann að dúsa án útskýringa í hátt á sólahring án þess að talað væri við hann, morguninn eftir var hann dregin fyrir rannsóknarlögreglu í yfirheyrslu... Þar sem hann vissi ekki neitt og var bæði skíthræddur og hoppandi reiður...
Mér var sagt að yfirheyrslan hefði gengið einhvernvegin svona fyrir sig...
"...og hvað heitirðu fyrst þú segist ekki vera Agnar...?"
"Ég er margbúinn að segja ykkur það... Ég heiti Björn Bjarnason...!"
"Já, jæja... Aggi minn, segðu nú annan betri..."
Og þar með fékk hann að dúsa í aðra 12 klukkutíma í viðbót í klefanum og var þá lögreglan farin að brjóta á honum lög og mannréttindi...
-
Ég er að rifja þetta upp vegna þess að það átti að handtaka mann vinkonu minnar núna um daginn vegna þess að hann var að brjótast inní bíl... Að vísu var þetta bíllinn hans, þ.e.a.s bíltík sem hann hafði vegna einyrkjavinnu sinnar og ekki skráður á hann heldur á fyrirtækið einsog fyrirtækjasíminn sem hann er venjulegast með, en öll skilríkin hans og fyrirtækjasíminn voru einmitt inní helv... bílnum sem var nú einmitt ástæða þess að hann var að reyna að brjótast inní bílfjandann...
Alltíeinu renndi upp að honum lögreglubíll og út stigu tveir lögregluþjónar...
"Hvað þykist þú vera að gera, vinur...?" Spurðu þeir...
"Ég læsti mig úti og allt draslið mitt er inní bílnum..." Svaraði hann...
"Já er það... Heyrðu...?!? Þekkjumst við ekki...?" Sagði annar lögregluþjónninn og nefndi nafn sem þessi maður vinkonu minnar kannaðist við sem nafn frænda síns... Sem er einmitt svona "góðkunningi lögreglunnar..."
"Nei, ég er ekki hann... Hann er frændi minn..." Sagði þessi greyið maður sem var að reyna að brjótast inní bílinn...
Það skipti ekki neinu máli hann var keyrður niðurí húddið á bílnum með hendur fyrir aftan bak og járnaður... Það var ekki fyrr en fimm aðrir einstaklingar stukku til og báðu lögregluna um að gjörasvovel að gæta að sér... Þessi ætlaði bílainnbrotsþjófur var að segja satt hann var ekki sá sem þeir héldu hann vera, að þeir hugðu að sér og könnuðu málið betur... En þar held ég að hann hafi BARA verið heppinn... Miðað við Björn Bjarnason allavega...!
Bloggar | 19.4.2012 | 16:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
-
Það sást og heyrðist strax á fyrsta degi að hann er veruleikafirrtur, greyið maðurinn...
Þú þjálfar ekki neitt af svonalöguðu með því að spila tölvuleiki einsog hann heldur fram í þessari frétt... Það vita allir sem spilað hafa tölvuleikinn, tölvuleiki yfirleitt og hafa komið nálægt byssu...
Að vera með raunverulegt vopn í höndunum er langt í frá eitthvað í líkingu við að vera með tölvumús í lófa og sýnir þessi samanburður Breiviks einungis hversu firrtur hann er og hversu auðvelt er að teyma uppúr honum órökréttar yfirlýsingar með því að gefa egói hans örlítið undir fótinn... Hann þarfnast, og er stöðugt að fara framá það í framburði sínum, mikillar athygli...!
Það sýndi sig strax í byrjun þegar hann gaf út yfirlýsinguna um að hann viðurkenni ekki dóminn... En tekur svo fullan þátt í dómhaldinu eftir reglum réttarins, svarar spurningum saksóknara og gefur út yfirlýsingar sem hann vill að veki á sér athygli vinstri, hægri eftir behag... Og hvað hann í firringu sinni finnst vera flott...!
-
Saksóknara hefur tekist, margsinnis, að sýna framá að Brevik er ekki heill... Hann er verulega veruleikafirrtur og á greinilega við einhverja þroskaskerðingu að glíma... Hann hefur greinilega ekki getuna á að setja sig í spor annara og hafa samhug/samkennd með öðrum sem rímar við sækópatíu en hann virðist ekki vera geðveikur... Hann gat þaulskipulagt sig miðað við þær forsendur sem hann gaf sér og er þ.a.l ekki geðveikur miðað við skilning laga allavega hérna á Íslandi... Og þau dómsmál sem hér hafa gengið s.b.r dómurinn yfir morðingja Hannesar Helgasonar...
Nema það hafi nú verið enn eitt dómsmorðið hérna á Íslandi...? Það virðist jú sem svo að geðsjúkir einstaklingar eigi verulega undir högg að sækja hérna heima gagnvart dómsvaldinu einsog ótal dæmi sanna...
Þeir virðast vera nefnilega furðanlega líkir með margt morðingi Hannesar og Breivik...
Hvort þær forsendur sem saksóknarinn yfir Breivik hefur náð að draga fram í réttarhaldinu dugi til að dæma Breivik óábyrgan, geðveikan og ósakhæfan í Noregi bíð ég spenntur eftir að fá að sjá... Því samanburðurinn á milli þessara tveggja dómskerfa landanna er vel réttlætanlegur...
|
Breivik þjálfaði miðið í tölvuleikjum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 19.4.2012 | 11:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Pælið í því...!
Ég er nú að tala um Bretland sem er sagt hafa næst spilltasta stjórnkerfið í Vestur- Evrópu, miðað við mínar heimildir í Brussel... En ég sel það ódýrt...
Spilltasta stórnkerfi Vestur-Evrópu á hinsvegar að vera á Ítalíu og því trúi ég alveg, þar eru leynireglur, klíkuskapur og bakstungur eitt af aðal þjóðareinkennum þeirra... En hvernig ætli við yrðum metin af Brussel fyrst þeir segja Bretana svona spillta...?
Því ég sæi aldrei einhvern hérna heima taka svona ábyrgð á gangverki stofnunnar og vinnu undirmanna sinna... Það yrði öllu klínt á eitthvað annað...
-
Ætli það fylgi öllum eyþjóðum siðspilling og klíkustarfsemi... Svona yfirleitt...?
|
Forstjóri SFO hættir óvænt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 18.4.2012 | 22:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
En ég á eftir að sjá Chelsea sleppa svona vel frá Nývangi...!
Barca mun koma til með að niðurlægja Chelsea þar...
-
Það er samt komin upp dáldið spes staða... Í augnablikinu eru það Bæjarar og Chelsea sem eru á leið í úrslitaleikinn... Hver annar en hörðustu stuðningsmenn hefðu veðjað á það...?
|
Di Matteo: Nánast fullkomið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 18.4.2012 | 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)




hrenni
huldumenn
